Afmćli skáldsins frá Fagraskógi

Afmćli skáldsins frá Fagraskógi Davíđ Stefánsson frá Fagraskógi er eitt ástsćlasta skáld Íslendinga. Hann gaf út fyrstu ljóđabókina, Svartar fjađrir, áriđ

Flýtilyklar

Afmćli skáldsins frá Fagraskógi

Davíđ Stefánsson.
Davíđ Stefánsson.

Davíð Stefánsson frá Fagraskógi er eitt ástsælasta skáld Íslendinga. Hann gaf út fyrstu ljóðabókina, Svartar fjaðrir, árið 1919. Hún flaug beint inn að hjarta þjóðarsálarinnar þar sem hin tilfinningaþrungnu, myndrænu en ekki síst persónulegu ljóð slógu í takt við tíðarandann. Svartar fjaðrir hafa verið gefnar út 13 sinnum síðast árið 2011. Davíð lét ekki þar við sitja. Þær bækur sem fylgdu í kjölfarið og leikrit eins og Gullna hliðið urðu til þess að festa Davíð í sessi sem eitt af höfuðskáldum Íslendinga á 20. öld. Ljóð Davíðs hafa orðið almenningseign og við þau samin fjölmörg lög.

Heimili Davíðs, Davíðshús við Bjarkarstíg 6, hefur verið varðveitt sem safn eftir að hann féll frá, en þar er einnig fræðimannaíbúð. Húsið og heimilið ber þess glöggt merki hve skáldið var mikill fagurkeri og safnari af guðs náð. Húsakynnin bera smekkvísi hans glöggt merki, full af bókum, listaverkum og persónulegum munum, eins og hann skildi við árið 1964, næstum eins og hans sé að vænta innan skamms.

Á laugardaginn verður boðið til hóflegrar afmælisveislu í Davíðshúsi milli 13 og 16 og er aðgangur ókeypis.

Pétur Halldórsson útvarpsmaður spjallar við gesti um kynni sín af skáldinu í gegnum þáttagerð og fyrirhugaða hljóðleiðsögn. Þeir sem eiga sögu að segja af kynnum sínum af skáldinu eru hvattir til að koma í heimsókn og deila sögu sinni með okkur.


-2°A 2 m/s

Akureyrarkaupstaður leggur áherslu á að veita einstaklingum og fjölskyldum fyrirmyndar búsetuaðstæður og faglega þjónustu. Sérstök áhersla er lögð á góða leik- og grunnskóla, fjölbreytta íþrótta- og tómstundastarfsemi og að á Akureyri þrífist frjótt og öflugt lista- og menningarlíf.


Stjórnkerfi Akureyrarbæjar er tvískipt eins og önnur opinber stjórnkerfi á Íslandi. Annars vegar er pólitíska kerfið, bæjarstjórn sem lýðræðislega kjörnir bæjarfulltrúar skipa, og fastanefndir en í þeim sitja bæjarfulltrúar og aðrir sem bæjarstjórn kýs. Æðsti yfirmaður pólitíska kerfisins er forseti bæjarstjórnar. Hins vegar er embættismannakerfið, þ.e. ráðnir stjórnendur bæjarfélagsins með bæjarstjóra sem æðsta yfirmann.


Hér finnur þú ýmis umsóknareyðublöð og auglýsingar frá Akureyrarbæ. Einnig er hægt að fara inn á íbúavef Akureyrarbæjar til að skoða reikninga og fleira.

 

Geislagata 9, 600 Akureyri     |     Sími 460 1000     |     Bréfasími 460 1001     |     Kennitala 410169-6229     |     Opiđ alla virka daga milli kl. 8-16

Netföng og símanúmer     |     Laus störf     |     Hafa samband