Vetri fagnað með skrímslum

Er einhver ástæða til annars en fagna komu vetrarins? Vetur konungur verður boðinn velkominn á Minjasafninu á Akureyri fyrsta vetrardag, laugardaginn 25. október.

Viltu gera þitt eigið skrímsli á skrímslagerðarstofunni? Þar verða búin til sjávarskrímsli eða önnur kvikindi líkt og sjá má á mörgum kortum sýningarinnar "Land fyrir stafni".

Býr einhver til mannætuhumar eins og á Íslandskortinu frá 1576 eða hrosshvalinn sem olli sjófarendum miklum skaða? Þessu stórhættulega skrímsli verður einmitt komið fyrir á sýningunni en það náðist í gildru í byrjun vikunnar.

Viltu kannski frekar skoða sýningarnar með kíki, korti og kompás? Þá er upplagt að gerast landkönnuður og taka þátt í ratleiknum. Þú getur líka slegist í för með leiðangri um sýninguna þar sem margt dularfullt ber fyrir augu.

Í ljósmyndastofu safnsins gefst tækifæri til að ná jólakortamynd fjölskyldunnar í skemmtilegum búningi. Stofan er hluti ljósmyndasýningarinnar "Með augum fortíðar". Þar gefur að líta verk Harðar Geirssonar sem tekur ljósmyndir með tækni og tækjum 19. aldar, sem hann smíðar sjálfur. Hörður ætlar að leiða gesti í gegnum leyndardóma ljósmyndanna.

Kaupmaðurinn verður á bakvið búðarborðið í sýningunni "Akureyri bærinn við Pollinn" og gefur kramarhús með góðgæti. Þar verður einnig lesið upp úr ferðasögum erlendra ferðamanna fyrri alda sem oft drógu upp sérkennilega mynd af landi og lýð. Eða var auga gestins svona glöggt? Alla vega verður þar að finna ýmislegt um hjátrú sem tengd er vetrinum.

Allt hefst þetta kl. 14 með ljúfum tónum Unu og Eikar.

Leiðsögn, ljúfir tónar, ljómandi laugardagsnammi og skemmtileg skrímsli: Vetur konungur er mættur á Minjasafnið á Akureyri!

Verið velkomin – enginn aðgangseyrir.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan