Verðlaunaafhending í ritlistarsamkeppninni UNGSKÁLD 2016

Verðlaunaungskáldin 2016
Verðlaunaungskáldin 2016

Í gær var tilkynnt um úrslit í ritlistarsamkeppninni UNGSKÁLD 2016, þar sem ungt fólk á aldrinum 16-25 ára á Eyþingssvæðinu átti þess kost að senda inn texta og hlutu þrjú bestu verkin peningarverðlaun.

Niðurstaða dómnefndar, sem í sátu Birna Pétursdóttir fjölmiðlakona og leikstjóri, Arnar Már Arngrímsson rithöfundur og framhaldsskólanemi og rapparinn og listamaðurinn Kött Grá Pjé, var eftirfarandi: Karólína Rós Ólafsdóttir var í 1. sæti, Dagbjört Katrín Jónsdóttir í 2. sæti og Hanna Rún Hilmarsdóttir í 3. sæti.  Verðlaunahafarnir fá peningarverðlaun sem eru alls 100 þúsund krónur.

Alls bárust 45 textar í samkeppnina frá 35 einstaklingum. Við athöfnina flutti Arnar Már hugvekju um ritlist, Kött Grá Pjé las upp úr nýútkominni bók sinni "Perurnar í íbúðinni minni" og Tumi Hrannar Pálmason og Hekla Liv Maríasdóttir nemendur úr Menntaskólanum á Akureyri fluttu tónlist. Að athöfn lokinni var boðið upp á kakó og jólsmákökur.

Þetta er í fjórða skipti sem Ungskáldasamkeppnin er haldin en henni er verkefnastýrt af hálfu Amtsbókasafnsins, Akureyrarstofu, Hússins ungmenna- og möguleikamiðstöðar, Menntaskólans á Akureyri og Verkmenntaskólans á Akureyri. Það er Uppbyggingarsjóður Norðurlands eystra sem hefur styrkt verkefnið frá upphafi en einnig hefur Menningarfélagið Hraun í Öxnadal og Skáldahúsin á Akureyri komið að samkeppninni annarsvegar með bókagjöfum og hinsvegar með útgáfu á verðlaunaverkunum.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan