Uppbygging á Jaðri

Í gær var undirritaður sérstakur viðauki við uppbyggingar- og framkvæmdasamning Akureyrarbæjar og Golfklúbbs Akureyrar frá 2007.

Viðaukinn felur í sér fjárveitingu til GA svo unnt verði að ljúka framkvæmdum og uppbyggingu að Jaðri sem unnið hefur verið að á síðustu árum og stefnt er að því að verði lokið árið 2018. Þar með verður hægt að byggja æfingaskýli á golfvellinum að Jaðri og bæta frágang á flötum og teigum sem gera golfvöllinn ennþá betri.

Meðfylgjandi mynd var tekin í gær á skrifstofu bæjarstjóra þegar Sigmundur Ófeigsson formaður GA og Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstóri höfðu undirritað viðaukann.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan