Ung skáld

Davíð Stefánsson skáld ungur að árum.
Davíð Stefánsson skáld ungur að árum.

Ungskáldum á Akureyri býðst nú að taka þátt í samkeppni um besta ritaða textann, svo sem ljóð, sögur, leikrit eða annað. Áhugasöm ungskáld eiga að senda textann sinn á rafrænu formi á netfangið ungskald@akureyri.is ásamt upplýsingum um sjálf sig. Verðlaun verða veitt fyrir 1. sæti 50.000 kr., 2. sæti 30.000 kr. og 3. sæti 20.000 kr.

Ungskáldin skulu vera á aldrinum 16-25 ára og búa á Akureyri eða í nágrenni.

Síðasti skiladagur er föstudagurinn 1. nóvember nk.

Nánari upplýsingar má fá með því að senda tölvupóst á netfangið ungskald@akureyri.is.

Samkeppnin er samvinnuverkefni Amtsbókasafnsins, Akureyrarstofu, Hússins upplýsinga- og menningarmiðstöðvar í Rósenborg, Verkmenntaskólans á Akureyri, Menntaskólans á Akureyri og Háskólans á Akureyri. Verkefnið er styrkt af Menningarráði Eyþings.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan