Umsóknarfrestur í Vinnuskólann

Athygli er vakin á því að nú er verið að taka við umsóknum í Vinnuskólann og er umsóknarfrestur til og með 2. maí 2014. Í Vinnuskólanum starfa 14-16 ára unglingar. 14 og 15 ára unglingar eru í vinnuhópum sem starfa um bæinn á starfsstöðvum í sínum hverfisskóla. Hóparnir hafa aðstöðu í grunnskólum bæjarins fyrir verkfæri. Vinna 16 ára unglinga fer fram hjá stofnunum og félögum Akureyrar og felst að mestu í gróðurumhirðu.

Sótt er um rafrænt á heimasíðu Akureyrarbæjar: http://www.akureyri.is/is/stjornkerfid/vinnustadurinn/storf-i-bodi.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan