Umferðarstýring austast á Strandgötu

Mynd: Auðunn Níelsson.
Mynd: Auðunn Níelsson.

Skipulagsnefnd samþykkti þann 28. janúar 2015, að beiðni Hafnasamlags Norðurlands, að ekki verði leyfður akstur austur Strandgötu, frá Hjalteyrargötu að Laufásgötu. Takmörkun þessi mun gilda þá daga sem skemmtiferðaskip eru við Oddeyrarbryggju sumarið 2015 og verður tímabundin í tvær klst. frá áætlaðri komu skips.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan