Ull og plast í Mjólkurbúðinni

Á morgun, laugardaginn 22. nóvember, kl. 14 opnar tvíeykið björgþorbjörg textíl sýninguna 70% ULL - 30% PLAST, 1. hluti í Mjólkurbúðinni í Listagilinu, en 2. hluti verður settur upp í Alþýðuhúsinu á Siglufirði á föstudaginn langa 2015.

Sýningin lítur til þess tíma þegar að flosa og smyrna var í tísku og á henni gefur að líta verk þar sem ull og bóluplast blandast saman á sérstæðan máta. Handavinna kvenna á síðkvöldum er tvíeykinu hugleikin þar sem ákveðin ró myndast við gerð hvers verks, vandamál leyst og ákvarðanir teknar. Hugarró eða hugarflug gæti því verið yfirskrift sýningarinnar eða einfaldlega: „Er einhver að FLOSA?“ Áhorfandans er valið.

Björg Marta Gunnarsdóttir útskrifaðist sem fatahönnuður frá IED hönnunarskólanum í Barcelona og hóf störf sem hönnuður hjá tískufyrirtæki John Rocha í Dublin á Írlandi strax eftir útskrift þar sem hún starfaði í tvö ár. Þorbjörg Halldórsdóttir hefur á síðustu tíu árum bæði haldið einkaksýningar og tekið þátt í samsýningum í formi innsetninga og gjörninga. Samstarf þeirra hófst fyrir nokkrum árum þegar Björg hannaði vörur fyrir búðina Frúin í Hamborg sem Þorbjörg rak á sínum tíma ásamt Guðrúnu Jónsdóttur.

Sýningin stendur yfir helgarnar 22.-23. og 29. 30. nóvember kl. 14-17.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan