Tónagjöf til Akureyrar

Í tilefni af 150 ára afmæli Akureyrar mun Eyþór Ingi Jónsson, organisti Akureyrarkirkju, kórstjóri og bæjarlistamaður 2011-2012, setja saman afmæliskór sem heldur tónleika í Hofi á afmælisdegi bæjarins 29. ágúst. Flutt verða verk nokkurra tónskálda sem tengjast bænum og hafa að beiðni Eyþórs Inga samið tónverk sem verða frumflutt á tónleikunum.

Tónleikarnir eru gjöf kórfólksins, tónskáldanna og Eyþórs Inga til bæjarins. Settur verður saman 35-40 manna kór og er krafa gerð um hæfni í nótnalestri og raddbeitingu. Ef þú hefur áhuga á að syngja með í afmæliskórum sendu þá línu á netfangið eythor@akirkja.is.