Þriggja radda þögn

Kristján Pétur Sigurðsson.
Kristján Pétur Sigurðsson.

Laugardaginn 31. janúar kl. 15 verður opnuð í vestursal Listasafnsins á Akureyri sýning Kristjáns Péturs Sigurðssonar Þriggja radda þögn og Rauða. Á sýningunni gefur að líta skúlptúrinn Rauða Þögn, en sú þögn hefur ferðast víða og alltaf þráð að komast inn í listasafn, og mynd af tónverki þar sem þögn er útsett fyrir píanó og selló. Vegna þess að nostra þarf við þagnir mun ásýnd verksins taka daglegum breytingum á sýningartímanum. Á lokamínútum sýningarinnar mun Kristján Pétur rjúfa þögnina með söng.

Sýningin verður opin sunnudag, þriðjudag, miðvikudag og fimmtudag kl. 12-17. Henni lýkur formlega fimmtudaginn 5. febrúar kl. 15 með lokunarteiti.

Myndlistarferill Kristjáns Péturs Sigurðssonar hófst 1984 með samsýningunni Glerá´84. Hann hefur haldið nokkrar einkasýningar og tekið þátt í samsýningum. Kristján hefur einnig gefið út fjölrit, þrjár kvæðabækur og nokkrar hljómplötur. Síðustu 10 ár var Kristján meðlimur í listsmiðjunni Populus tremula sem starfrækt var með blóma í kjallara Listasafnsins.

Sýningin er hluti af sýningaröð sem hófst 10. janúar og mun standa til 8. mars og inniheldur 8 vikulangar sýningar. Habby Osk, Brenton Alexander Smith og Jóna Hlíf Halldórsdóttir hafa þegar sýnt en aðrir sýnendur eru í tímaröð: Thora Karlsdóttir, Joris Rademaker, Lárus H. List og Arnar Ómarsson.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan