Þriðjudagsfyrirlestur Jóns Páls

Í dag, þriðjudaginn 24. mars kl. 17, heldur Jón Páll Eyjólfsson, leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar, fyrirlestur í Listasafninu á Akureyri, Ketilhúsi undir yfirskriftinni Leikhúsvélar, tæki og lögmál Donald Rumsfelds um stig þekkingar. 

Þar fjallar Jón Páll fjalla um almenna kenningu sína um samyrkju í sviðslistum; Leikhúsvélina. Kenning þessi hefur bæði vakið alþjóðlega athygli og verið kennd í Listaháskóla Íslands, en hún er afurð níu ára tilraunavinnu sem miðar að samvinnu í sviðslistum og ber heitið Mindgroup. Vefir: jonpalle.com og mindgroup.me.

Jón Páll útskrifaðist úr East 15 Acting School í London árið 2000 og hefur síðan starfað sem leikari og leikstjóri, bæði hér heima og erlendis.

Enginn aðgangseyrir er á fyrirlesturinn sem er sá tíundi og næstsíðasti í röð fyrirlestra sem haldnir eru í Ketilhúsinu á hverjum þriðjudegi kl. 17 undir yfirskriftinni Þriðjudagsfyrirlestrar.

Fyrirlestraröðin er samvinnuverkefni Listasafnsins á Akureyri, Verkmenntaskólans á Akureyri, Háskólans á Akureyri og Myndlistaskólans á Akureyri. Hildur Friðriksdóttir heldur síðasta fyrirlestur vetrarins þriðjudaginn 31. mars undir yfirskriftinni Hin fullkomna kvenímynd.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan