Styrkir til meistaranema

Ráðhús Akureyrarbæjar.
Ráðhús Akureyrarbæjar.

Samband íslenskra sveitarfélaga veitir nú í annað sinn allt að þremur meistaranemum styrki til að vinna lokaverkefni á sviði sveitarstjórnarmála sem tengjast stefnumörkun sambandsins 2014-2018. Til úthlutunar er að þessu sinni allt að 750.000 kr. og stefnt er að því að veita þrjá styrki.

Rafrænt umsóknarform, verklagsreglur vegna úthlutunar, stefnumörkun Sambands íslenskra sveitarfélaga 2014-2018, áhersluþættir við styrkveitingar til meistaranema 2017 og starfsáætlun sambandsins árið 2017 er að finna á vef sambandsins, www.samband.is.

Í umsókn skal meðal annars koma fram greinargóð lýsing á verkefninu, markmiðum þess og hvernig það styður við stefnumörkun sambandsins. Heimilt er að tilgreina verkefni þó svo að þau séu ekki í skjali yfir áhersluþætti við styrkveitingar 2017 en verkefnið verður þó að eiga góða skírskotun til stefnumörkunarinnar.

Nánari upplýsingar veitir Valur Rafn Halldórsson hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga.

Umsóknafrestur er til miðnættis 1. febrúar 2017.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan