Mynd: Auðunn Níelsson.
Samfélags- og mannréttindaráð hefur auglýst eftir umsóknum um styrki ráðsins vegna seinni úthlutunar á þessu ári.
Styrkirnir ná til starfsemi og þjónustu sem fellur að hlutverkum ráðsins, t.d. til forvarnamála, jafnréttismála og
æskulýðs- og tómstundamála.
Umsækjendur eru beðnir að kynna sér reglur Akureyrarbæjar um styrkveitingar svo og samþykktir ráðsins um markmið og vinnulag á heimasíðu bæjarins.
Umsóknum skal skilað á þar til gerðum eyðublöðum sem fást í Þjónustuanddyri Ráðhússins og á
ofangreindri vefslóð.
Umsóknarfrestur er til 6. nóvember og skal umsóknum skilað í Þjónustuanddyri Ráðhússins, Geislagötu 9.