Stuttmyndasmiðja fyrir krakka

Búum til bíó!
Búum til bíó!
Stuttmyndasmiðja fyrir krakka á aldrinum 6-8 ára er hluti af Listasumri 2016. Hún stendur í þrjá daga frá kl. 11-15 og hefst mánudaginn 25. júlí.
 
Smiðjan fer fram í Sal Myndlistarfélagsins og krakkarnir vinna saman að því að skapa einfalt handrit að stuttmynd sem þau síðan leikstýra, leika og spinna undir umsjá Freyju Reynisdóttur.
 
Þátttökugjald er aðeins 5.000 kr. og ennþá eru laus pláss.
 
Skráið krakkann með því að senda netfang á listasumar@akureyri.is.
 
 
Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan