Starfslaun listamanna

Mynd: Ragnar Hólm Ragnarsson.
Mynd: Ragnar Hólm Ragnarsson.

Á morgun rennur út frestur til að sækja um starfslaun listamanna á Akureyri fyrir tímabilið 1. júní 2015 til 31. maí 2016 sem stjórn Akureyrarstofu auglýsti. Starfslaunum verður úthlutað til eins listamanns og hlýtur viðkomandi 9 mánaða starfslaun.

Markmiðið er að listamaðurinn sem starfslaunin hlýtur geti helgað sig betur listsköpun sinni eða einstökum verkefnum á vettvangi hennar á tímabilinu. Einungis listamenn sem eiga lögheimili á Akureyri koma til greina.

Umsækjendur skili, ásamt umsókn, upplýsingum um listferil sinn og greinargóðum upplýsingum um hvernig starfslaunatíminn skal notaður.

Umsóknum skal skilað í þjónustuanddyri Ráðhússins að Geislagötu 9.

Nánari upplýsingar veitir Hulda Sif Hermannsdóttir, verkefnisstjóri viðburða og menningarmála, hjá Akureyrarstofu í netfanginu huldasif@akureyri.is

Samþykkt um starfslaun listamanna.

Umsóknarfrestur er til og með 4. mars 2015.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan