Rörin og handriðið sem komið var fyrir í skafli á Ráðhústorgi fyrir snjóbrettafólk fá að vera þar áfram á meðan snjórinn heldur sér. Krakkar úr Brettafélagi Akureyrar fá þá að leika sér þar og æfa meðan kostur er.
Vetrarhátíðin sjálf þykir í alla staði hafa heppnast mjög vel þrátt fyrir að veðrið hafi sett strik í reikninginn með hlýindum og hvassviðri á köflum.
Mikil stemning skapaðist á Ráðhústorgi alla helgina þar sem snjóbrettakappar léku list sínar við hlið Frosta snjókalls. Góð aðsókn var á skíðagöngunámskeið, sleðaspyrnu, ískross og á Vetrarsportsýninguna í Boganum og margir tóku þátt í fjölmörgum ferðum sem í boði voru á meðan hátíðinni stóð. Undirbúningshópur Éljagangs þakkar öllum sem að hátíðinni komu fyrir mikið og gott starf.

