Skútur við Hof

Mynd: María H. Tryggvadóttir
Mynd: María H. Tryggvadóttir

Fjórar seglskútur lögðu að bryggju við Hof í gærkvöld. Skúturnar taka þátt í keppninni "World ARC – Around the World Rally" sem byrjaði og endar á Sankti Lúsíu í Karíbahafinu. Skúturnar fjórar eru frá Hollandi, Skotlandi, Svíþjóð og Íslandi.

Á íslensku skútunni Huga eru hjónin Kristófer Oliversson og Svanfríður Jónsdóttir og á sænsku skútunni Ayama eru hjónin Stefan Berg og Anna Þorvaldsdóttir en Anna er frá Akureyri. Skúturnar verða hér a.m.k. fram á laugardag. Hægt er að sjá siglingaleið Huga og Ayama sem fylgjast að á slóðinni https://my.yb.tl/Hugur.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan