Sigyn er framúrskarandi ungur Norðlendingur

Sigyn Blöndal.
Sigyn Blöndal.

Hið nýstofnaða félag JCI Norðurland stóð nýverið fyrir leitinni að "Framúrskarandi ungum Norðlendingi" 2013 og veitti Sigyn Blöndal Kristinsdóttur viðurkenninguna við hátíðlega athöfn laugardaginn 18. maí síðastliðinn í Ungmennahúsinu í Rósenborg. Samtals voru 19 framúrskarandi einstaklingar tilnefndir í gegnum heimasíðu JCI en dómnefnd ákvað hver myndi hljóta titilinn þetta árið.

Í dómnefnd sátu Svava Arnardóttir, Sóley Björk Stefánsdóttir og Erlingur Kristjánsson. Viðurkenningunni er ætlað að vera hvatning til ungs fólks á Norðurlandi sem skarar fram úr. Auk Sigynjar hlutu Valdís Eiríksdóttir og Kristján Guðmundsson viðurkenningar fyrir góða frammistöðu hvort á sínu sviði.

Sigyn er fædd 1982. Hún stofnaði Point dansstúdíó á Akureyri og hefur rekið það síðastliðin 8 ár. Hún hefur haft mikil áhrif á líf nemenda sinna og reynst góð fyrirmynd. Sigyn stundar nám í Englandi og stóð nýlega fyrir söfnun svo hún gæti farið í sjálfboðaliðastarf til Úganda í haust. Í þeim tilgangi rakaði hún meðal annars af sér allt hárið fyrir framan áhorfendur á Glerártorgi. Sigyn er frábært dæmi um unga konu sem lætur hendur standa fram úr ermum og nær árangri sem byggist á eigin frumkvæði og dugnaði. Hún á stóran þátt í að byggja upp danslíf Akureyrar og sjálfstraust barna og ungs fólks.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan