Samsýning 30 norðlenskra listamanna

Úr myndaröðinni „Þýskir varðturnar” eftir Þórgunni Oddsdóttur.
Úr myndaröðinni „Þýskir varðturnar” eftir Þórgunni Oddsdóttur.

Á Akureyrarvöku, laugardaginn 29. ágúst kl. 15, verður sýningin Haust opnuð í Listasafninu á Akureyri. Þar munu 30 norðlenskir listamenn leiða saman hesta sína og sýna verk sem ætlað er að gefa innsýn í líflega flóru myndlistar á Akureyri og Norðurlandi. Sýningin verður tvíæringur og afar fjölbreytt, bæði hvað varðar aðferðir og miðla. Til sýnis verða málverk, innsetningar, videóverk, leirverk, skúlptúrar, ljósmyndir, skjáverk, textílverk, teikningar og bókverk.

Í mars síðastliðnum auglýsti Listasafnið á Akureyri eftir umsóknum um þátttöku í haustsýningu safnsins og var forsenda umsóknar að listamenn búi eða starfi á Norðurlandi eða hafi tengingu við svæðið. Alls bárust hátt í 90 umsóknir og sérstaklega skipuð dómnefnd valdi 30 listamenn og verk á sýninguna. Dómnefndina skipuðu Aðalheiður S. Eysteinsdóttir myndlistarkona, Alice Liu myndlistarkona og rekstraraðili gestavinnustofanna Listhúss á Ólafsfirði, Arndís Bergsdóttir hönnuður og doktorsnemi í safnafræði, Ólöf Sigurðardóttir safnstjóri Listasafns Reykjavíkur og Hlynur Hallsson myndlistarmaður og safnstjóri Listasafnsins á Akureyri.

Haustsýningar voru lengi fastur liður í sýningarhaldi hér á landi og erlendis lifa þær víða góðu lífi enn. Haust endurvekur því þá góðu hefð að sýna hvað listamenn á svæðinu eru að fást við.

Listamennirnir sem sýna á sýningunni eru: Arna Valsdóttir, Arnar Ómarsson, Baldvin Ringsted, Bergþór Morthens, Björg Eiríksdóttir, Eiríkur Arnar Magnússon, Freyja Reynisdóttir, Guðmundur Ármann Sigurjónsson, Guðrún Þórisdóttir, Gunnhildur Helgadóttir, Helga Pálína Brynjólfsdóttir, Heiðdís Hólm, Hekla Björt Helgadóttir, Joris Rademaker, Jóna Hlíf Halldórsdóttir, Ingibjörg Guðmundsdóttir, Klængur Gunnarsson, Marina Rees, Ragnheiður Þórsdóttir, Rannveig Helgadóttir, Rósa Sigrún Jónsdóttir, Rósa Júlíusdóttir, Sam Rees, Stefán Boulter, Unnur Óttarsdóttir, Victor Ocares, Þórarinn Blöndal, Þórgunnur Oddsdóttir, Þóra Sólveig Bergsteinsdóttir og Þóra Sigurðardóttir. Sýningarstjóri er Hlynur Hallsson.

Haust stendur til 18. október og er opin þriðjudaga – sunnudaga kl. 12-17. Aðgangur er ókeypis. Leiðsögn um sýningar Listasafnsins er á fimmtudögum kl. 12.15-12.45.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan