Safnasafnið á Svalbarðsströnd fékk í dag Eyrarrósina 2012 - viðurkenningu fyrir afburða menningarverkefni á landsbyggðinni. Safnið þykir vinna merkilegt frumkvöðlastarf í þágu íslenskrar alþýðulistar.
Í fréttatilkynningu frá Listahátíð í Reykjavík segir að Safnasafnið tengi saman alþýðulist og nútímamyndlist af alúð og kímni. Í því eru rúmlega 4.000 alþýðulistaverk og talsvert af nútímalistaverkum. Safnið var stofnað 1995 af Magnhildi Sigurðardóttur og Níelsi Hafstein.
„Við viljum ekki að alþýðulistin sé sett í einhvern ákveðinn flokk eins og gamalt fólk eða leikskólabörn. Þess vegna sýnum við alltaf saman mjög tilraunakennda eða framsækna nútímalist, vegna þess að mjög margir framsæknir íslenskir myndlistarmenn sækja í og nýta sér margt sem alþýðulistamenn gera. Bæði tækni eða tæknileysi og síðan hugmyndaheim,“ segir Níels.
Eyrarrósar-verðlaununum fylgir verðlaunagripur, flugmiðar og ein og hálf milljón í verðlaunafé. Tvö önnur verkefni voru tilnefnd til Eyrarrósarinnar í ár: Sjóræningjahúsið á Vatnseyri við Patreksfjörð og tónlistarhátíðin Við Djúpið á Ísafirði.
Frétt af www.ruv.is.

