Rými málverksins í Listasafninu

Rými málverksins í Listasafninu Laugardaginn 14. janúar kl. 15 opnar í Listasafninu á Akureyri fyrsta sýningin á vegum Sjónlistamiðstöðvarinnar. Sýningin

Flýtilyklar

Rými málverksins í Listasafninu

Proximity eftir Ingunni Fjólu Ingþórsdóttur.
Proximity eftir Ingunni Fjólu Ingþórsdóttur.

Laugardaginn 14. janúar kl. 15 opnar í Listasafninu á Akureyri fyrsta sýningin á vegum Sjónlistamiðstöðvarinnar. Sýningin nefnist Rými málverksins og er samsýning tólf ungra myndlistarmanna sem eiga það sameiginlegt að takast á við sögu og arfleifð málverksins í listsköpun sinni.

Á sýningunni getur að líta þverskurð þeirra fjölbreyttu hræringa sem eiga sér stað í samtíma málverki, þar sem margslungnum áhrifum er umbreytt og kollvarpað í gjöfulu samtali við ólíka miðla og tækni. Það er engu er líkara en að sú afhelgun sem átt hefur sér stað á málverkinu sem miðli, hafi opnað honum nýja, fjölbreytta og áður óþekkta möguleika til könnunar á veröldinni.

Á sýningunni eru ný málverk sem flest eru gerð sérstaklega af þessu tilefni og sýna vel þann þrótt, leikgleði og áræði er einkennir málverk samtímans, ásamt því að varpa skemmtilegu ljósi á þær fjölbreyttu birtingarmyndir sem málverkið hefur tekið á sig á undanförnum misserum, þar sem fjölþætt vinnubrögð og vísanir hafa valdið straumhvörfum á miðlinum jafnt í efnis-, tækni- og hugmyndafræðilegu tilliti.

Listamennirnir sem þátt taka í sýningunni eru: Arna Óttarsdóttir, Áslaug Íris Katrín Friðjónsdóttir, Bjarni Þór Pétursson, Davíð Örn Halldórsson, Gunnar Már Pétursson, Halldór Ragnarsson, Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir, Jeannette Castioni, Kristín Rúnarsdóttir, Logi Bjarnason, Solveig Pálsdóttir og Þorvaldur Jónsson. Sýningarstjóri er Einar Garibaldi Eiríksson.

Verk listamannanna eru unnin úr margskonar efnivið þar sem hefðbundnar aðferðir málverksins skarast á við ólíka miðla, aðferðir og tækni. Þau beita innsæi sínu og ímyndunarafli til framlengingar á möguleikum miðilsins og þannig opna þau honum ný svæði vitundar og skilnings þar sem allir möguleikar eru opnir.

Við hæfi er að ný Sjónlistamiðstöð hefji starfsemi sína með sýningu á nýjum straumum í íslensku málverki. Á sýningunni er sleginn nýr tónn í íslenskri myndlist og fram stígur kynslóð listamanna er vinnur að endurskilgreiningu málverksins í nútímasamhengi.

Sýningin stendur til 17. mars. Sjónlistamiðstöðin er opin alla daga vikunnar nema mánudaga frá kl. 12 til 17 og er aðgangur ókeypis í boði Akureyrarbæjar.


-2°A 2 m/s

Akureyrarkaupstaður leggur áherslu á að veita einstaklingum og fjölskyldum fyrirmyndar búsetuaðstæður og faglega þjónustu. Sérstök áhersla er lögð á góða leik- og grunnskóla, fjölbreytta íþrótta- og tómstundastarfsemi og að á Akureyri þrífist frjótt og öflugt lista- og menningarlíf.


Stjórnkerfi Akureyrarbæjar er tvískipt eins og önnur opinber stjórnkerfi á Íslandi. Annars vegar er pólitíska kerfið, bæjarstjórn sem lýðræðislega kjörnir bæjarfulltrúar skipa, og fastanefndir en í þeim sitja bæjarfulltrúar og aðrir sem bæjarstjórn kýs. Æðsti yfirmaður pólitíska kerfisins er forseti bæjarstjórnar. Hins vegar er embættismannakerfið, þ.e. ráðnir stjórnendur bæjarfélagsins með bæjarstjóra sem æðsta yfirmann.


Hér finnur þú ýmis umsóknareyðublöð og auglýsingar frá Akureyrarbæ. Einnig er hægt að fara inn á íbúavef Akureyrarbæjar til að skoða reikninga og fleira.

 

Geislagata 9, 600 Akureyri     |     Sími 460 1000     |     Bréfasími 460 1001     |     Kennitala 410169-6229     |     Opið alla virka daga milli kl. 8-16

Netföng og símanúmer     |     Laus störf     |     Hafa samband