Rekstrarafgangur og skuldir lækka

Rekstur samstæðu Akureyrarbæjar var viðunandi á árinu og varð rekstrarafgangur meiri en áætlanir höfðu gert ráð fyrir. Rekstur Aðalsjóðs var þó þungur. Skuldir lækkuðu um 745 milljónir króna. Ársreikningar fyrir árið 2014 voru lagðir fram í bæjarráði síðastliðinn fimmtudag. Samkvæmt sveitarstjórnarlögum skal fjalla um ársreikninginn á tveimur fundum í sveitarstjórn og verður hann til umfjöllunar í bæjarstjórn Akureyrar 7. og 21. apríl  nk.

"Ég er tiltölulega sáttur við afkomu sveitarfélagsins í heild og fjárhagsleg staða er sterk," segir Guðmundur Baldvin Guðmundsson formaður bæjarráðs. "Rekstrarniðurstaða ársins er ívið betri en áætlanir gerðu ráð fyrir og munar þar miklu um lága verðbólgu. Hins vegar er rekstur Aðalsjóðs nokkuð áhyggjuefni en miklar hækkanir á launum í kjölfar kjarasamninga á árinu komu niður á rekstrinum."

Ársreikningurinn er settur fram samkvæmt reikningsskilum sveitarfélaga. Starfseminni er skipt upp í tvo hluta, A-hluta annars vegar og B-hluta hins vegar. Til A-hluta telst starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum. Um er að ræða Aðalsjóð, Fasteignir Akureyrarbæjar, Framkvæmdamiðstöð og Eignasjóð gatna. Til B–hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða meirihluta eru í eigu sveitarfélagsins en rekstur þeirra er að stofni til fjármagnaður með þjónustutekjum. Fyrirtækin eru: Félagslegar íbúðir Akureyrarbæjar, Strætisvagnar Akureyrabæjar, Öldrunarheimili Akureyrabæjar, Framkvæmdasjóður Akureyrarbæjar, Bifreiðastæðasjóður Akureyrabæjar, Hafnarsamlag Norðurlands, Norðurorka hf, Heilsugæslustöðin á Akureyri, Byggingasjóður Náttúrufræðistofnunar og Gjafasjóður Öldrunarheimila Akureyrarbæjar.

Rekstur samstæðu Akureyrarbæjar var viðunandi og heildarniðurstaða ársins í meginatriðum eins og fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir. Rekstrarniðurstaða samstæðunnar var jákvæð um 525 milljónir króna en áætlun hafði gert ráð fyrir 449 milljóna króna rekstarafgangi. Samkvæmt yfirliti um sjóðstreymi nam veltufé frá rekstri 2.187,6 millj. kr. sem er 402,7 millj. kr. minna en áætlun hafði gert ráð fyrir og 330,6 millj. kr. lægri upphæð en árið áður. Handbært fé frá rekstri nam 2.273,8 millj. kr. Fjárfestingarhreyfingar námu samtals 1.202 millj. kr. Fjármögnunarhreyfingar námu samtals 1.082,5 millj. kr. Afborgun langtímalána nam 1.042,8 millj. kr. en ný langtímalán voru engin. Lækkun á handbæru fé á árinu nam 10,7 millj. kr. og nam handbært fé sveitarfélagsins í árslok 1.822 millj. kr.

Heildarlaunagreiðslur án launatengdra gjalda hjá samstæðunni voru 8.381.817 þúsundir króna. Fjöldi stöðugilda var að meðaltali 1.552 sem er 4 færra en árið áður. Laun og launatengd gjöld sveitarfélagsins í hlutfalli við rekstrartekjur þess voru 56,2%. Annar rekstrarkostnaður var 31,3,% af rekstrartekjum. Skatttekjur sveitarfélagsins voru 590 þús. kr. á hvern íbúa en tekjur samtals 1.073 þús. kr. á hvern íbúa. Árið 2013 voru skatttekjurnar 565 þús. kr. á hvern íbúa og heildartekjurnar 1.037 þús. kr.

Þrátt fyrir stöðugleika í rekstri var niðurstaða A-hluta neikvæð um 134 millj. kr. en fjárhagáætlun gerði ráð fyrir jákvæðri niðurstöðu um 37 millj. kr. Sér í lagi var rekstur aðalsjóðs þungur innan A-hluta og skýrist að stórum hluta af kjarasamningsbundnum launahækkunum og hækkun á lífeyrisskuldbindingum. Á móti kom að lítil verðbólga og hagstæð gengsþróun ollu því að fjármagskostnaður var mun lægri en áætlanir gerðu ráð fyrir.

Samkvæmt efnahagsreikningi voru eignir sveitarfélagsins bókfærðar á 39.396,6 millj. kr. í árslok, þar af voru veltufjármunir 3.710,5 millj. kr. Skuldir sveitarfélagsins með lífeyrisskuldbindingum námu samkvæmt efnahagsreikningi 22.601,5 millj. kr., þar af voru skammtímaskuldir 3.320,4 millj. kr. Fjárhagur Akureyrarbæjar er traustur og nam skuldaviðmið samkvæmt reglum Eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga 105% en var 112% árið áður.

Veltufjárhlutfallið var 1,12 í árslok en var 1,20 árið áður. Bókfært eigið fé nam 16.795,1 millj. kr í árslok. Eiginfjárhlutfall var 43% af heildarfjármagni í árslok en var 40% árið áður.

Ársreikningur Akureyrarbæjar 2014.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan