Rauður bær

Mynd: Linda Óladóttir
Mynd: Linda Óladóttir

Nú er verslunarmannahelgin að skella á og litur helgarinnar er rauður!

Bæjarbúar eru hvattir til að taka þátt í að klæða bæinn í búning fyrir hátíðina. Markmiðið er að bærinn verði rauður í samræmi við hjartað sem hefur sett svip sinn á bæinn. Rauðar seríur, rautt skraut eða eitthvað rautt og fallegt við hús bæjarins, látið hugmyndaflugið endilega ráða!

Setjum hjartað á réttan stað, tökum saman höndum og skreytum bæinn rauðan, sköpum stemningu og sýnum að þetta er hátíð okkar allra.
Best skreytta húsið getur unnið 50.000 kr. gjafakörfu frá Nettó auk þess sem dómnefnd velur best skreyttu götuna og í verðlaun verður grillkjötspakki að verðmæti 100 þúsund í boði Goða.

Í dómnefnd eru:
Hilda Jana, framamær Akureyrar
Sigga Lund, fjölhæfa fjölmiðladrottningin
Raggi í JMJ, skreytingarkóngur bæjarins 

Til að eiga möguleika á að vinna til verðlauna sjá nánari upplýsingar á: http://www.icelandsummergames.com/is/rautt

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan