Púslmarkaður í Amtsbókasafninu á Akureyrarvöku

púslmynd
púslmynd

Einn að viðburðum Akureyrarvöku er púslmarkaður á Amtsbókasafninu og því upplagt að skipta gömlu púslunum út og fá ný og spennandi púsl að kljást við. Þú kemur með eitt, tvö eða þrjú púsl og tekur önnur í staðinn. Þér er líka velkomið að gefa púsluspil án þess að taka annað í staðinn.  Það er tekið á móti öllum spilum, hefðbundnum, wasgij spilunum og barnapúsluspilum. Það eina sem verður að hafa í huga er að ekki vanti neina kubba í spilin. Byrjað verður að taka á móti púsluspilunum í dag mánudaginn 22. ágúst. En, athugið að sjálf skiptin fara eingöngu fram á Akureyrarvöku á milli klukkan 13-17!

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan