Sigurður Heiðar Jónsson.
Laugardaginn 25. október verða haldnir tónleikar í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri á vegum Populus tremula sem starfað hefur í tíu
ár samfleytt og sett svip sinn á menningarlífið á Akureyri með afgerandi hætti. Tónleikarnir eru haldnir til minningar um aðalhvatamann og
leiðtoga Populus tremula, Sigurð Heiðar Jónsson.
Á tónleikunum í Hofi mun Populus-hljómsveitin einskorða sig við lög eftir þrjá óumdeilda snillinga sem hún hefur
sérhæft sig í: Tom Waits, Nick Cave og Cornelis Vreeswijk. Auk fastra meðlima hljómsveitarinnar munu koma fram tveir víðkunnir gestasöngvarar –
þau Sigríður Thorlacius og Valdimar Guðmundsson.
Hljómsveitin sjálf – Húsband Populus tremula – er svo skipuð: Kristján Pétur Sigurðsson, söngur; Arna Valsdóttir,
söngur; Arnar Tryggason, hljómborð og harmónika; Bárður Sigurðsson, gítar og banjó; Guðmundur Egill Erlendsson, gítar; Hjálmar
Stefán Brynjólfsson, bassi o.fl.; Orri Einarsson, trommur. Fleiri munu stíga á svið.
Hljómsveitin hefur í áranna rás haldið fjölmarga tónleika og víða við góðan orðstír og fögnuð og fengist
við verk fleiri höfunda en hér hafa verið nefndir. Má þar nefna Megas og Leonard Cohen.
Menningarsmiðjan Populus tremula var stofnuð haustið 2004 og fékk þá til umráða húsnæði í kjallara Listasafnsins á
Akureyri og hefur haft þar aðsetur síðan. Þótt tónlist hafi verið límið í starfseminni var frá upphafi mörkuð sú
stefna að halda úti alhliða menningarsmiðju, enda plássið kjörið til hvers konar listviðburða. Nú, að tíu árum liðnum
frá stofnun, hafa verið haldnir rétt um 300 list- og menningarviðburðir í kjallaranum góða og þar er af mörgu að taka: Myndlist,
tónleikar af ýmsum toga, bókmenntaviðburðir fjölmargir, leiksýningar og eiginlega allt sem nöfnum tjáir að nefna á sviði lista.
Aldrei hefur í allan þennan tíma verið tekið gjald af neinum, þ.e.a.s. ókeypis hefur verið inn á alla viðburði frá upphafi og
listafólk hefur aldrei þurft að greiða fyrir að fá að koma þar fram. Fjöldinn allur af víðkunnu og virtu listafólki hefur komið
fram í Populus með einum eða öðrum hætti og jafnframt hafa fjölmargir ungir listamenn á öllum aldri stigið þar sín fyrstu skref.
Populus tremula hefur gefið út rúmlega 20 bækur af ýmsum toga, bæði eftir þekkta listamenn og nýliða. Allir hafa átt jöfn
tækifæri í Populus þennan áratug. Einnig var gefin út hljómplata með „húsbandinu“.
Frá upphafi hafa félagsmenn borið jafna ábyrgð á starfseminni og kostuðu hana fyrstu árin úr eigin vasa. En án traustra bakhjarla
hefði þetta aldrei verið hægt. Því ber sérstaklega að þakka Ásprenti Stíl, Menningarráði Eyþings og Akureyrarstofu
fyrir veittan stuðning. Fjölmargir aðrir hafa lagt starfinu lið.
Í árslok 2014 verður starfsemi Populus tremula hætt og félagið lagt niður, enda komið að kynslóðaskiptum á þessum
vettvangi.
Sigurður Heiðar Jónsson, sem tónleikarnir eru haldnir til minningar um, var einlægur unnandi fagurra lista og húmanisti fram í fingurgóma. Uppruna
hljómsveitarinnar má rekja til þess að hann safnaði saman góðu fólki til að búa til tónlistardagskrá með lögum Cornelis
Vreeswijk árið 2002. Og lét ekki þar staðar numið heldur varð hvatamaður að stofnun og leiðtogi Populus tremula allt frá fyrstu hugmynd og uns
hann varð að láta undan fyrir MND-sjúkdómnum snemmsumars 2011, langt fyrir aldur fram. Sigurður Heiðar lifði og dó með reisn. Þannig vilja
aðstandendur að Populus tremula sé einnig minnst.