Nýtt lið í Útsvari

Frá vinstri: Börkur, Brynhildur og Urður. Mynd: Ragnar Hólm Ragnarsson.
Frá vinstri: Börkur, Brynhildur og Urður. Mynd: Ragnar Hólm Ragnarsson.

Á dögunum var auglýst eftir fólki til að keppa fyrir hönd Akureyrar í spurningakeppni sveitarfélaganna Útsvari sem er á dagskrá Sjónvarpsins. Fjöldinn allur af ábendingum barst Akureyrarstofu og nýtt lið var valið út frá þeim.

Í nýja liðinu eru Brynhildur Þórarinsdóttir rithöfundur og dósent við kennaradeild HA, Börkur Már Hersteinsson líffræðikennari við VMA og Urður Snædal prófarkalesari.

Nýtt lið Akureyrar mætir liði Mosfellsbæjar 14. nóvember í Sjónvarpinu.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan