Nýjar lóðir í Hagahverfi

Auglýstar hafa verið lausar til umsóknar 17 nýjar lóðir í Hagahverfi sem er þriðji áfangi Naustahverfis. Lóðirnar eru auglýstar með fyrirvara um byggingarhæfi vegna gatnagerðar, áætlað um miðjan október. Umsóknareyðublöð, almennir byggingarskilmálar, skipulags- og byggingarskilmálar og reglur um lóðaveitingar ásamt gjaldskrá gatnagerðargjalda liggja frammi á skrifstofu skipulagsdeildar og í þjónustuanddyri Geislagötu 9 og einnig á heimasíðu Akureyrarbæjar.

Einstaklingum ber að leggja fram fullgilt greiðslumat frá viðurkenndri fjármálastofnun á greiðslugetu sinni allt að 45 milljónir króna. Til að
umsókn teljist gild þarf umsækjandi að vera í skilum við bæjarsjóð. Einstaklingar njóta forgangs við úthlutun í einbýlis- og parhúsalóða. Umsóknarfrestur er til og með 3. júní 2015 og umsóknum skal skila í afgreiðslu skipulagsdeildar eða í þjónustuanddyri Geislagötu 9.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan