Ný og stórglæsileg skíðabraut

Nýja brautin í Hlíðarfjalli. Mynd: Ragnar Hólm Ragnarsson.
Nýja brautin í Hlíðarfjalli. Mynd: Ragnar Hólm Ragnarsson.

Unnið hefur verið að því í morgun að troða nýja og stórglæsilega skíðabraut sem liggur frá skíðahótelinu Skíðastöðum í Hlíðarfjalli niður að orlofsbyggðinni að Hálöndum. Um er að ræða rúmlega tveggja kílómetra langa braut sem er því um helmingi lengri en brautirnar sem bjóðast þegar fólk tekur sér far með stólalyftunni Fjarkanum. Um páskana er ætlunin að litlar rútur verði á bílastæðinu við Hálönd og keyri fólk aftur upp í Hlíðarfjall. Skíðafólk getur annars vegar rennt sér frá miðplaninu fyrir neðan skíðahótelið eða frá húsinu við gönguskíðabrautina. Skíðapassar og vetrarkort munu gilda í rúturnar en einnig verða seldar stakar ferðir.

Guðmundur Karl Jónsson, forstöðumaður í Hlíðarfjalli, segir að þetta sé fyrst og fremst spennandi tilraunaverkefni. „Okkur langaði að prófa þetta en hugmyndin kviknaði þegar við skoðuðum veðurspána fyrir helgina. Það er spáð veðurblíðu en suðvestan áttum sem geta orðið ansi hvassar þegar vindurinn stendur niður af fjallinu eða kemur í strengnum ofan af Glerárdal. Þá hefur stundum þurft að loka Fjarkanum. Auðvitað vonum við að svo fari ekki en þá höfum við a.m.k. þessa nýju og stórglæsilegu braut til vonar og vara en hún er rúmir tveir kílómetrar og útsýnið stórkostlegt. Við köllum hana „Heimþrána“ því þarna er fólk að renna sér heim á leið þótt því bjóðist svo að taka rútuna aftur upp eftir til að renna sér meira,“ segir Guðmundur Karl.

Myndirnar að neðan tók Ragnar Hólm í Hlíðarfjalli í morgun. Smellið á þær til að sjá stærri útgáfur og fletta á milli þeirra.

 

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan