Norður um páskana

Fífa Konráðsdóttir.
Fífa Konráðsdóttir.

Lokið er Komdu norður leik sem Akureyrarstofa stóð fyrir á Visitakureyri.is og var nafn Fífu Konráðsdóttur dregið úr hópi um 600 manns sem gátu svarað því rétt að enginn aðgangseyrir er að Listasafninu á Akureyri. Fífa hreppti að launum helgarpassa fyrir tvo í Hlíðarfjall og 10 sundmiða í Sundlaug Akureyrar. Hún segir að fjölskyldan hafi mjög gaman af útivist og reyni að komast á fjöll eins oft og færi gefst, gjarnan á skíði eða snjóbretti.

"Við eigum þrjú börn og synir okkar, 18 og 11 ára, eru báðir mest á snjóbrettum eins og við hjónin en 5 ára dóttir okkar vill vera á skíðum. Við höfum yfirleitt farið norður á Akureyri á hverju ári gagngert til að komast í þetta fjölskylduvæna umhverfi í Hlíðarfjalli. Vinningurinn kemur sér mjög vel og við áætlum ad nýta skíðapassana og sundmiðana um páskana," segir Fífa Konráðsdóttir.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan