Myrkvun gatna í kvöld

Norðurljós á Akureyri í gærkvöldi.
Norðurljós á Akureyri í gærkvöldi.

Götuljós verða slökkt við strandlengjuna á Akureyri frá kl. 22-24 í kvöld svo íbúar og gestir geti notið magnaðrar norðurljósasýningar sem spáð er á himni þegar aldimmt verður orðið. Svæðið sem myrkvað verður afmarkast af Höephner í suðri til Menningarhússins Hofs í norðri. Þannig ætti ljósmengun að vera í lágmarki á því svæði neðan brekkubrúnar.

Norðurljósavirknin hefur verið góð undanfarna daga og mjög mikil virkni verður í kvöld skv. norðurljósaspá Veðurstofu Íslands.

Lögregla og slökkvilið hafa verið upplýst um málið og er fólk hvatt til að aka einstaklega varlega á þessu svæði og sýna tillitssemi á meðan myrkvun stendur.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan