Mikil mengun frá eldgosinu

Akureyri klukkan rúmlega níu í morgun.
Akureyri klukkan rúmlega níu í morgun.

Mikil mengun frá eldgosinu í Holuhrauni er nú á Akureyri. Samkvæmt vef Umhverfisstofnunar eru loftgæði mjög lítil og fólki ráðlagt að forðast áreynslu utandyra. Þeir sem hafa tök á haldi sig innandyra, loki gluggum og slökkvi á loftræstingu. Almannavarnir hafa sent út viðvörun vegna þessa með smáskilaboðum í farsíma fólks.

Hægt er að fylgjast með mælingum í Naustafjöru hér.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan