Mikið verður um að vera í Hrísey um helgina þegar árlegt þorrablót eyjarskeggja verður haldið. Þessi helgi er ásamt páskahelginni einn helsti hápunktur vetrarins í skemmtun og afþreyingu. Í kvöld verður haldið svokallað Pub Quiz í Brekku en slíkar samkomur eru haldnar þar hálfsmánaðarlega yfir vetrartímann.
Í hádeginu á laugardag býður Ferðamálafélag Hríseyjar upp á rjúkandi grjónagraut og slátur í Hlein. Það var árið 2007 sem Ferðamálafélagið bryddaði upp á því að bjóða í hádegisgraut á þessum degi og er búið er að elda fyrir um 1.020 manns frá þeim tíma.
Opið verður á Brekku frá kl. 11.30. Gallerí Perla verður opið frá kl. 13-17 og svo er hið vinsæla þorrablót Hríseyinga um kvöldið. Að venju eru gestir um 170 og gaman að geta þess að í eyjunni eru 164 íbúar. Einnig verður sundlaugin opin á laugardag frá kl. 12-15 og Júllabúð frá kl. 13-17 á laugardag og 14-17 á sunnudag.

