Matur úr héraði - Local Food 2013

Sýningin MATUR-INN 2013 verður haldin í Íþróttahöllinni á Akureyri dagana 11. og 12. október næstkomandi. Á sýningunni kennir sannarlega ýmissa grasa en hún er stærsti viðburður í starfsemi félagins Matur úr Eyjafirði - Local Food og var síðast haldin haustið 2011. Þá var sett aðsóknarmet þegar sýninguna sóttu yfir 13.000 gestir.

Á sýningunni verða sýningarsvæði fyrir fyrirtæki og félagasamtök og einnig markaðssvæði þar sem kjörið er að selja haustuppskeruna og annað sem tengist mat og matarmenningu. Á sýningarsvæðinu verða einnig keppnir fagmanna og áhugamanna í hinum ýmsu matartengdu greinum.

Aðgangur er ókeypis og allar frekari upplýsingar má sjá HÉR

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan