Málþing um eflingu sveitarstjórnarstigsins

Mynd af heimasíðu HA.
Mynd af heimasíðu HA.

Föstudaginn 10. febrúar nk. verður haldið í húsakynnum Háskólans á Akureyri málþing um eflingu sveitarstjórnarstigsins á Íslandi. Þingið er haldið í samvinnu nefndar um eflingu sveitarstjórnarstigsins, Innanríkisráðuneytisins og Háskólans á Akureyri og stendur frá kl. 11.00-15.30.

Dagskrá:

Klukkan 11.00
Ráðstefnugestir boðnir velkomnir: Stefán B. Sigurðsson, rektor Háskólans á Akureyri.

Klukkan 11.05
Setning: Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra flytur ávarp.

Klukkan 11.20
Ávarp: Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Klukkan 11.30
Frá starfi nefndar um eflingu sveitarstjórnarstigsins: Þorleifur Gunnlaugsson, formaður.

Klukkan 11.45
Niðurstöður könnunar um viðhorf sveitarstjórnarmanna og alþingismanna til eflingar sveitarstjórnarstigsins: Grétar Þór Eyþórsson, prófessor við Háskólann á Akureyri.

Klukkan 12.30
Léttur hádegisverður.

Klukkan 13.00
Sveitarstjórnarstigið – staða, horfur og áskoranir:
Eva Einarsdóttir, borgarfulltrúi í Reykjavík,
Eva Sigurbjörnsdóttir, sveitarstjórnarfulltrúi í Árneshreppi,
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri í Garðabæ
Ólína Þorvarðardóttir, alþingismaður og varaformaður Umverfis- og samgöngunefndar
Sigurborg Kr. Hannesdóttir, forseti bæjarstjórnar Grundarfjarðar.

Klukkan 14.00
Pallborðsumræður undir stjórn Ragnhildar Hjaltadóttur, ráðuneytistjóra í innanríkisráðuneytinu: Albertína F. Elíasdóttir, forseti bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar og formaður Fjórðungsambands Vestfirðinga, Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, sveitarstjórnarfulltrúi í Fjarðabyggð, Eiríkur B. Björgvinsson, bæjarstjóri á Akureyri, Grétar Þór Eyþórsson, prófessor, Hermann Sæmundsson, skrifstofustjóri skrifstofu mannréttinda og sveitarfélaga í innanríkisráðuneytinu og Ragnheiður Hergeirsdóttir, fyrrverandi bæjarstjóri í Árborg og varaformaður nefndar um eflingu sveitarstjórnarstigsins.

Klukkan 15.20
Lokaorð; Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra.

Klukkan 15.30
Málþingi slitið.

Fundarstjóri: Elín R Líndal, sveitarsjónarfulltrúi í Húnaþingi vestra.

Tilkynna skal þátttöku með tölvupósti á netfangið: arny.g.olafsdottir@irr.is.

Þeir sem ekki eiga heimangengt geta fylgst með dagskránni á netinu og verða nánari upplýsingar veittar síðar.