Malbikun í Síðuhverfi

Smellið á myndina til að sjá stærri útgáfu.
Smellið á myndina til að sjá stærri útgáfu.

Í dag, mánudaginn 31. ágúst, er unnið að malbikun við nýtt hringtorg á gatnamótum Borgarbrautar og Bugðusíðu og er svæðið lokað fyrir allri umferð meðan á malbikun stendur. Strætisvagnar keyra um Bröttusíðu og Borgarbraut að Merkigili á meðan. Biðskýli í Bugðusíðu og Vestursíðu verða því ekki virk á þessum tíma. Reiknað er með að framkvæmdir standi yfir fram yfir miðja viku en opnað verður aftur fyrir umferð um leið og færi gefst.

Beðist er velvirðingar vegna óþæginda sem af þessu kunna að hljótast og um leið er óskað eftir að vegfarendur sýni tillitsemi meðan á framkvæmdum stendur.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan