Litrík gangbraut á Eyrarlandsvegi

Gangbrautin máluð.
Gangbrautin máluð.

Í dag var unnið að því í blíðskaparveðri að mála gangbrautina neðst á Eyrarlandsvegi í óvenjulegum litum en þar er um að ræða einkennisliti Akureyrarvöku sem munu prýða prentaða dagskrá hátíðarinnar, auglýsingar og fleira.

Hugmyndin með að mála gangbrautina í þessum litum er að tengja saman viðburði í Listagilinu og tilraunirnar í Vísindasetrinu sem verður í Rósenborg.

Vísindasetrið verður starfrækt í Rósenborg laugardaginn 30. ágúst en Listagilið mun iða af lífi og listum alla helgina frá gömlu kartöflugeymslunni og niður í miðbæ.

Prentuð dagskrá Akureyrarvöku verður borin í hús á Akureyri í næstu viku en þú getur kynnt þér dagskrána nú þegar á Visitakureyri.is.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan