Frá Listasumri 2015.Mynd Guðrún Þórsdóttir
Það er fjölbreytt og skemmtilegt Listasumar framundan en það verður sett helgina 15.-17. júlí. Þeim sem hafa áhuga á að taka þátt í Listasumri gefst kostur á að sækja um verkefnastyrki og hefur frestur til að sækja um verið framlengdur til og með 10. maí.
Allar listgreinar og allur aldur á heima á Listasumri enda er markmiðið að fólk upplifi, skapi, skoði og njóti.
Þeim sem hafa áhuga á að taka þá í Listasumri gefst kostur á að sækja um verkefnastyrki og eru í boði tveir 300 þúsund króna styrkir og fjórir 100 þúsund króna styrkir, auk þess sem hægt er að sækja um aðstöðu fyrir viðburði í Sal Myndlistafélagsins í Listagilinu.
Umsækjendur þurfa að skila verkefnalýsingu og upplýsingum um umsækjendur á netfangið listasumar@listak.is og er síðasti dagur til að sækja um þriðjudagurinn 10. maí.
Listafólk og skipuleggjendur menningarviðburða á svæðinu eru einnig hvattir til að vera í sambandi við Listasumar og senda tölvupóst á netfangið listasumar@listak.is til að koma viðburðum á framfæri í kynningarmiðlum Listasumars. Hægt er að fylgjast með á heimasíðu Listasumars og á Facebooksíðu Listasumars.
Myndir: Guðrún Þórsdóttir frá Listasumri 2015