Leiðsögn í Listasafninu

Fimmtudaginn 18. september kl. 12 mun Arna Valsdóttir bjóða upp á leiðsögn um sýningu sína Staðreynd - Local Fact sem nú stendur yfir í Listasafninu á Akureyri. Þar sýnir Arna vídeóverk sem eru að mestu unnin á síðustu sjö árum.

Sýningin stendur til 12. október og er opnunartími Listasafnins kl. 12-17 alla daga nema mánudaga.

Aðgangur er ókeypis.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan