Konur launalausar í 36 daga á ári

Kvennafrídagurinn er mánudagurinn 24. október og þá standa Akureyrarbær og Jafnréttisstofa fyrir hádegisfundi á Hótel Kea.

Til umfjöllunar verður launajafnrétti en í árlegri launakönnun meðal félaga VR kem­ur meðal ann­ars fram að kyn­bund­inn launamun­ur minnk­ar ekki milli ára. Ef litið er til grunn­launa eru kon­ur með 12,2% lægri laun en karl­ar og þegar búið er að taka til­lit til annarra þátta sem hafa áhrif á laun­in sit­ur eft­ir 9,9% kyn­bund­inn mun­ur á grunn­laun­um.

Þetta þýðir að í raun eru konur "launalausar" í 36 daga á ári.

Dagskrá fundarins:

  • 11.45: Húsið opnað.
  • 12.00: Fundarstjóri setur fundinn. Katrín Björg Ríkarðsdóttir, aðstoðarmaður bæjarstjóra.
  • 12.05: "Til færri fiska metnar." Kristín Ástgeirsdóttir, framkvæmdastýra Jafnréttisstofu.
  • 12.15: "Starfsmatskerfi til að meta ólík störf til sömu launa." Arna Jakobína Björnsdóttir, formaður Kjalar stéttarfélags.
  • 12.30: "Völd, virðing og launaseðillinn." Drífa Snædal, framkvæmdastjóri Starfsgreinasambands Íslands.
  • 12.45: Umræður.
  • 13.15: Fundi slitið.
Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan