Konur í bæjarstjórn

Í tilefni af 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna til Alþingis hefur verið ákveðið að eingöngu kvenbæjarfulltrúar sitji og stýri bæjarstjórnarfundi Akureyrarbæjar þriðjudaginn 16. júní kl. 16.00.

Þær konur sem hafa verIð bæjarfulltrúar á Akureyri í gegnum tíðina eru hvattar til að koma í bæjarstjórnarsalinn og hlýða á fundinn.

Eftir fund, um kl. 19.30, munu kvenbæjarfulltrúarnir hittast með forverum sínum, borða saman, ræða pólitíkina og gleðjast.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan