Klippikort í þjónustuanddyri

Mynd: Auðunn Nielsson
Mynd: Auðunn Nielsson

Fasteignaeigendur eru minntir á klippikortin sem fást afhent í þjónustuanddyri Akureyrarkaupstaðar að Geislagötu 9 og á skrifstofu Gámaþjónustu Norðurlands við Hlíðarvelli. Hver fasteignaeigandi getur fengið afhent eitt kort árlega gegn framvísun skilríkja og veitir það aðgang að gámasvæðinu við Réttarhvamm og losunar á allt að 4 m³ af gjaldskyldum heimilisúrgangi. Leigjendur íbúðarhúsnæðis verða að nálgast kort hjá leigusala eða kaupa sér kort í þjónustuanddyrinu.

Það borgar sig að flokka þann úrgang sem til fellur og skila á réttan stað. Með því verndum við umhverfið og stöndum að málum á sem hagkvæmastan hátt.Megnið af því sem skilað er inn á gámasvæðið er endurnýtt með einum eða öðrum hætti og breytist því úr úrgangi í verðmæti. Fyrir skil á slíkum úrgangi þarf ekki að greiða. En sumt þarfnast kostnaðarsamrar meðhöndlunar og í þeim tilvikum þarf að borga. Það er mjög mikilvægt að flokka rétt því þannig komum við í veg fyrir sóun verðmæta og tryggjum að fólk greiði aðeins þegar við á.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan