Kirkjulistavika í Akureyrarkirkju að hefjast

Fjórtánda Kirkjulistavika í Akureyrarkirkju hefst sunnudaginn 19. apríl og verður fyrsti dagur hátíðarinnar að miklu leyti helgaður minningu Davíðs Stefánssonar, skálds frá Fagraskógi. Hátíðin hefst með Davíðsmessu þar sem séra Karl Sigurbjörnsson biskup prédikar. Tónlistin í messunni verður að mestu leyti við ljóð Davíðs. Ásamt Kór Akureyrarkirkju syngur Elvý G. Hreinsdóttir og Birkir Blær Óðinsson leikur á gítar.

Að messu lokinni verður opnuð myndlistarsýning í Safnaðarheimilinu og kapellu þar sem þau Joris Rademaker og Guðrún Pálína Guðmundsdóttir sýna verk sín. Klukkan hálfeitt hefjast svo Davíðstónleikar þar sem þau Kristjana Arngrímsdóttir söngkona og Kristján Eldjárn Hjartarson gítarleikari flytja lög við ljóð Davíðs Stefánssonar.

Sönghópurinn Hljómeyki flytur messu fyrir tvo kóra eftir Frank Martin ásamt fleiri verkum á tónleikum sem hefjast klukkan 17 í kirkjunni og um kvöldið teygir hátíðin sig til Dalvíkur þar sem verður æðruleysismessa í Dalvíkurkirkju.

Þrennir hádegistónleikar verða haldnir í kirkjunni á Kirkjulistaviku. Mánudaginn 20. apríl leikur Sigrún Magna Þórsteinsdóttir orgelleikari verk eftir Mendelssohn, Scheidt og Boëllmann. Þriðjudaginn 21. apríl verður leikið á kontrabassa og orgel þegar þeir Þórir Jóhannsson bassaleikari og Eyþór Ingi Jónsson orgelleikari flytja verk eftir Bach, Bruch og fleiri. Loks leikur hinn ungi og efnilegi píanóleikari, Alexander Smári Edelstein, á flygil kirkjunnar miðvikudaginn 22. apríl. Aðgangur að hádegistónleikunum er ókeypis.

Líf og fjör verður í Akureyrarkirkju alla hátíðardagana en smitast einnig út í samfélagið. Til dæmis verður haldið námskeið í Biblíumatargerð í Naustaskóla, morgunsöngur verður í kapellu, Kaffi Ilmur rekur útibú í anddyri Safnaðarheimilisins, Foreldramorgunn verður í Safnaðarheimilinu og opið hús hjá Æskulýðsfélaginu. Fimmtudaginn 23. apríl, sumardaginn fyrsta, verður vorferð eldri borgara við Akureyrarkirkju farin til Grenivíkur undir fararstjórn sr. Hildar Eirar Bolladóttur.

Laugardaginn 25. apríl kl. 16 verður fræðslufyrirlestur í kapellu Akureyrarkirkju í samvinnu við Barokksmiðju Hólastiftis þar sem fjallað verður um hinn mikla frumkvöðul kirkjutónlistar, dansk-þýska tónskáldið Dietrich Buxtehude. Aðgangur er ókeypis.

Lokadag Kirkjulistaviku í Akureyrarkirkju verður líka lokahátíð barnastarfsins í kirkjunni með messu klukkan ellefu, kaffihús og myndlistarsýningar verða opnar og vikunni lýkur svo með hátíðartónleikum í Akureyrarkirkju kl. 17. Þar verður íslensk/ensk tenging, flutt tónlist eftir Báru Grímsdóttur, Björk Guðmundsdóttur, Michael Jón Clarke, Sigfús Einarsson, Sveinbjörn Sveinbjörnsson, Charles Stanford, Ralph Vaughan-Williams og Samuel Wesley. Frumflutt verður nýtt íslenskt tónverk, Te Deum eftir Michael Jón Clarke. Fjórir kórar sameinast tónleikunum, Kór Akureyrarkirkju, Kór Möðruvallaklausturskirkju, Hymnodia og félagar úr Kammerkór NorðurlandsHelena Guðlaug Bjarnadóttir syngur einsöng, Ella Vala Ármannsdóttir leikur á horn og Eyþór Ingi Jónsson á orgel. Stjórnandi er Sigrún Magna Þórsteinsdóttir. Aðgangseyrir kr. 2000.

Dagskrá Kirkjulistaviku í Akureyrarkirkju 2015 er að finna á vef Akureyrarkirkju, akureyrarkirkja.is.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan