Jónsmessuhátíð á Listasumri

Tomoo Nagai.
Tomoo Nagai.

Jónsmessuhátíð á Listasumri hófst formlega í dag kl. 12 í Listagilinu með sýningunni GleðjAndi í Deiglunni og lýkur á morgun kl. 12 að hádegi á sýningunni RÓT í Listasafninu á Akureyri, Ketilhúsi. Hátíðin mun standa í sólarhring og á meðal viðburða má nefna kjólagjörning Thoru Karlsdóttur í Lifandi vinnustofu, uppákomu Skapandi sumarstarfa í Sundlaug Akureyrar, ljóðalestur í Deiglunni, jazz á Minjasafninu og tónlistargjörning japönsku listamannanna Tomoo Nagaii og Kana Nagamura kl. 05.00 í Listagilinu. 

Dagskrá Jónsmessuhátíðarinnar:

Kl. 10 - 00. Listasafnið á Akureyri. Sýning Mireyu Samper, Endurvarp. Opið til miðnættis.

Kl. 10 - 00. 10. RÓT 2015. Eftirvinnsla af degi 2 og 7. Opið til miðnættis og listamenn að störfum.

Kl. 12. Deiglan / Gilfélagið. GleðjAndi. Jonna, Brynhildur, Dagrún og Thora verða á staðnum 24 tíma.

Kl. 12. Sundlaug Akureyrar með opið til kl. 02.00. Tónlist og boðið verður upp á ís og drykki.

Kl. 12. Salur Myndlistafélagsins í Listagilinu. Sýning Maríu Óskar Jónsdóttir. Opið til miðnættis.

Kl. 13-17. Friðbjarnarhús, Leikfangasafnið. Leikfangasýning.

Kl. 14. Lifandi vinnustofa, Kaupvangsstræti 23. Listamannaspjall og kynning á kjólagjörningi Thoru Karlsdóttur.

Kl. 14 - 19. Flóra, Hafnarstræti 90. Hreinsun, markaður og uppákomur.

Kl. 15. Flóra, Hafnarstræti 90. Ólafur Sveinsson glímir við Haförn og lax.

Kl. 15. Listagilið. Helga Sigríður málar með börnunum í Listagilinu.

Kl. 15 - 17. Útibúið, Elvar Örn Egilsson opnar í Listagilinu.

Kl. 16. Flóra, Anna Richardsdóttir með gjörning.

Kl. 20.30. Friðbjarnarhús, Leikfangasafnið. Bangsi bestaskinn les sögur á leikfangasafninu.

Kl. 21.30. Sundlaug Akureyrar. Skapandi sumarstörf verða með uppákomu á laugarbökkunum.

Kl. 22. Deiglan / Gilfélagið. Sesselja Ólafsdóttir og Vilhjálmur B. Bragason ljóðalestur

Kl. 22. Minjasafnið. Djassað á safninu – Magnús Magnússon leikur á gítar.

Kl. 23. Minjasafnið. Vandræðaskáld flytja lög við ljóð Davíðs Stefánssonar frá Fagraskógi í Minjasafnsgarðinum ef viðrar annars inni á safni.

Kl. 00. Gongslökun fyrir ofan Myndlistarskólann í Listagilinu. Komið með teppi.

Kl. 00.30. Tónleikar í Deiglunni. Sveitin milli sanda. Guðrún Harpa Örvarsdóttir og Atli Már Rúnarsson.

Kl. 02. Sundlaug Akureyrar lokar.

Kl. 05. Tónlistargjörningur í Listagilinu. Tomoo Nagaii og Kana Nagamura.

Kl. 10 - 17. Listasafnið á Akureyri, Ketilhús. Rót2015, eftirvinnsla af degi 2 og 7.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan