Jólatónleikar Hymnodiu og Sigurðar Flosasonar

Sigurður Flosason. Mynd: Daníel Starrason.
Sigurður Flosason. Mynd: Daníel Starrason.

Jólatónleikar Hymnodiu verða haldnir í Akureyrarkirkju mánudaginn 22. desember kl. 21. Þetta er orðinn árlegur viðburður og eru tónleikarnir ávallt gríðarlega vel sóttir. Á þeim er sköpuð kyrrlát stemmning, slökkt er á raflýsingu kirkjunnar, ekkert er talað og engar þagnir milli laga. Tónleikarnir mynda því klukkustundar langa heild, þar sem tónleikagestir geta látið þreytu líða úr sér, notið kyrrðar og samveru rétt fyrir jólin.

Í ár spilar hinn magnaði saxófónleikari, Sigurður Flosason, með Hymnodiu. Sigurður hefur í áraraðir verið einn virtasti og afkastamesti tónlistarmaður þjóðarinnar. Hann mun spila á ýmis blásturshljóðfæri sem og slagverkshljóðfæri. Stjórnandi Hymnodiu, Eyþór Ingi Jónsson, mun spila á harmóníumorgel.

Hymnodia gaf út jólaplötuna "Þar ljós inn skein" fyrir síðustu jól.  Sú plata seldist afar vel og fékk gríðarlega góða dóma. 

Jón Agnar Ólason, tónlistargagnrýnandi Morgunblaðsins sagði m.a. um plötuna í tónlistargagnrýni 3. desember 2013:

,,...hér er um frábærlega vel heppnaða plötu að ræða og þeir sem óska sér hljómþýðrar jólaskífu þar sem kyrrlátur hátíðleiki er ríkjandi þurfa ekki að leita lengra... Hátíðlegri jólaplata verður trauðla gefin út á þessari aðventu.''

Á tónleikunum í Akureyrarkirkju verða eingöngu flutt íslensk jólalög, bæði gömul og ný, vel þekkt og óþekkt.

Forsala aðgöngumiða er í Eymundsson, Hafnarstræti. Miðaverð er 2.000 kr.

Menningarráð Eyþings styrkir samstarf Sigurðar Flosasonar og Hymnodiu.

Myndband með jólasöng Hymnodiu.


Hymnodia. Mynd: Daníel Starrason.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan