Frá jólamarkaðinum.
Á sunnudag var árlegur jólamarkaður haldinn í gamla félagsheimilinu Sæborg í Hrísey. Gestir voru um það bil sjötíu
sem þykir með besta móti og var almenn ánægja meðal eyjarskeggja um það hvernig til tókst.
Að venju stóð kvenfélagið fyrir sölu á smákökum en hafði einnig kleinur á boðstólum að þessu sinni. Gallerí
Perla hafði ýmsan jólavarning til sölu og leikklúbburinn Krafla seldi kaffi og kruðerí. Ljóst er að jólamarkaðurinn í
Hrísey hefur fest sig í sessi og er kominn til að vera.