Jólaljósin tendruð

Laugardaginn 28. nóvember kl. 16 hefst athöfn á Ráðhústorgi þar sem koma fram jólasveinar með alls kyns sprell og ljósin verða tendruð á jólatrénu sem er gjöf frá vinabænum Randers í Danmörku. Lúðrasveit Akureyrar undir stjórn Gert-Ott Kuldpärg spilar nokkur jólalög áður en dagskrá hefst.

Jólasveinarnir fjórir af fjöllum koma fram og Hurðaskellir sér um að kynna dagskrána. Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri flytur ávarp, Mette Kjuel Nielssen sendiherra Dana á Íslandi afhendir bæjarbúum tréð og flytur ávarp. Oliver Atlas Petersen kveikir ljósin á jólatrénu og Barna- og æskulýðskór Glerárkirkju syngur undir stjórn Margrétar Árnadóttur. Að auki munu félagar úr Norræna félaginu á Akureyri rölta um og gefa smákökur.

Akureyringar hafa tekið eftir því að jólastjörnurnar eru komnar upp við Glerárgötu, Drottningarbraut og víðar um bæinn. Bæjarbúar eru einnig farnir að lýsa upp heimkynni sín með jólaljósum og virðist sem það gerist æ fyrr á árinu. 

Aðventuævintýri á Akureyri hefst með tendrun ljósanna á jólatrénu á Ráðhústorgi en ævintýrið stendur fram að jólum með alls kyns viðburðum og jólastemningu í miðbænum. Dagskrá Aðventuævintýris er á Visitakureyri.is.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan