Íþróttamenn Akureyrar 2016

Viktor Samúelsson og Ásta Birgisdóttir, móðir Bryndísar, sem tók við viðurkenningunni fyrir hennar h…
Viktor Samúelsson og Ásta Birgisdóttir, móðir Bryndísar, sem tók við viðurkenningunni fyrir hennar hönd.

Kraftlyftingamaðurinn Viktor Samúelsson úr KFA er íþróttakarl Akureyrar árið 2016 og sundkonan Bryndís Rún Hansen úr Óðni er íþróttakona Akureyrar 2016. Í öðru sæti voru þau Tryggvi Snær Hlinason, körfuknattleiksmaður úr Þór og Hafdís Sigurðardóttir, frjálsíþróttakona úr UFA. Í þriðja sæti voru Valþór Ingi Karlson, blakari úr KA og María Guðmundsdóttir, skíðakona úr SKA.

Kjöri íþróttamanns Akureyrar var lýst í verðlaunahófi á vegum Íþróttabandalags Akureyrar og Frístundaráðs Akureyrarbæjar sem fram fór í Menningarhúsinu Hofi í gær. 16 aðildarfélög tilnefndu alls 30 íþróttamenn úr sínum röðum. Þess má geta að þetta er í fyrsta sinn sem krýnd eru bæði íþróttakarl og íþróttakona en sú breyting var ákveðin á ársþingi ÍBA síðastliðið vor. Viktor vann titilinn í annað sinn en Bryndís hlaut þennan sæmdartitil í fjórða sinn í dag.

Viktor á langan afreksferil að baki þó hann sé ungur að árum. Hann hefur slegið 211 íslandsmet á ferlinum og 34 standa enn. Hann hefur einnig slegið 7 norðurlandamet og á 5 sem standa enn. Hann sigraði öll Íslandsmeistaramót ársins á stigum. Besti árangur hans árið 2016 er 357 kg í hnébeygju, 315 kg í bekkpressu og 322,5 kg í réttstöðulyftu. Helstu afrek hans á árinu gullverðlaun á EM U23 í bekkpressu og silfur á HM U23 í bekkpressu. Hann er sem stendur áttundi á heimslistanum í sínum þyngdarflokki.

Bryndís hefur undanfarin ár verið í hópi sterkustu sundkvenna landsins. Hún er margfaldur Íslandsmeistari í skriðsundi og flugsundi. Árið 2016 hefur verið Bryndísi gjöfult. Hún setti nokkur Íslandsmet og náði B-lágmörkum fyrir Ólympíuleikana í RÍÓ. Hún komst í undanúrslit á EM í London og bætti Íslandsmetið sitt í 50 m flugsundi. Á heimsmeistaramótinu í Kanada setti hún 2 Íslandsmet og náði inn í undanúrslit á stórbættu Íslandsmeti í 50 m flugsundi.

Þetta er í 38. sinn sem íþróttamaður Akureyrar er kjörinn en það var fyrst gert árið 1979. Alls hefur 21 einstaklingur hlotið þetta sæmdarheiti, oftast allra júdókappinn Vernharð Þorleifsson, sjö sinnum alls.

Við sömu athöfn veitti Frístundaráð Akureyrar þremur einstaklingum heiðursviðurkenningar fyrir vel unnin störf í þágu íþrótta á Akureyri. Aðalheiður Gísladóttir fékk viðurkenninguna fyrir Íþróttafélagið Eik þar sem hún hefur komið að íþróttastarfi fyrir þroskahefta um áratugabil bæði í stjórn félagsins og sem þjálfari. Áslaug Kristjánsdóttir fékk viðurkenningu fyrir áratuga starf í þágu Hestamannafélagsins Léttis. Magnús Ingólfsson fékk einnig heiðursviðurkenningu en Magnús var einn af brautryðjendum uppbyggingar í Hlíðarfjalli og starfaði mikið fyrir Skíðaráð Akureyrar, kom að byggingu KA heimilisins og hefur líka sinnt miklu og óeigingjörnu starfi í þágu Golfklúbbs Akureyrar. Þá fengu forsvarsmenn íþróttafélaga á Akureyri afhenta styrki og viðurkenningar vegna Íslandsmeistara og landsliðsfólks úr þeirra röðum á árinu 2015. Íslandsmeistarar úr akureyrskum íþróttafélögum voru 303 og 101 einstaklingur tók þátt í landsliðsverkefnum á árinu.

Íþróttamenn Akureyrar 1979-2016:

1979          Gunnar Gíslason, handbolti, fótbolti
1980          Haraldur Ólafsson, lyftingar
1981          Haraldur Ólafsson, lyftingar
1982          Nanna Leifsdóttir, skíði
1983          Nanna Leifsdóttir, skíði
1984          Halldór Ómar Áskelsson, fótbolti
1985          Guðrún H. Kristjánsdóttir, skíði
1986          Freyr Gauti Sigmundsson, júdó
1987          Halldór Ómar Áskelsson, fótbolti
1988          Guðrún H. Kristjánsdóttir, skíði
1989          Þorvaldur Örlygsson, fótbolti
1990          Valdemar Valdemarsson, skíði
1991          Rut Sverrisdóttir, sund
1992          Freyr Gauti Sigmundsson, júdó
1993          Vernharð Þorleifsson, júdó
1994          Vernharð Þorleifsson, júdó
1995          Vernharð Þorleifsson, júdó
1996          Vernharð Þorleifsson, júdó
1997          Ómar Halldórsson, golf
1998          Vernharð Þorleifsson, júdó
1999          Vernharð Þorleifsson, júdó
2000          Ingvar Karl Hermannsson, golf
2001          Vernharð Þorleifsson, júdó
2002          Dagný Linda Kristjánsdóttir, skíði
2003          Andreas Stelmokas, handbolti
2004          Rut Sigurðardóttir, Tae Kwon Do
2005          Guðlaugur Már Halldórsson, akstursíþr.
2006          Dagný Linda Kristjánsdóttir, skíði
2007          Dagný Linda Kristjánsdóttir, skíði
2008          Rakel Hönnudóttir, fótbolti
2009          Bryndís Rún Hansen, sund
2010          Bryndís Rún Hansen, sund
2011          Bryndís Rún Hansen, sund
2012          Arna Sif Ásgrímsdóttir, fótbolti
2013          Hafdís Sigurðardóttir, frjálsar íþróttir
2014          Hafdís Sigurðardóttir, frjálsar íþróttir
2015          Viktor Samúelsson, kraftlyftingar
2016          Viktor Samúelsson, kraftlyftingar
2016          Bryndís Rún Hansen, sund

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan