Íbúafundur í Hrísey

Mynd: Ragnar Hólm Ragnarsson.
Mynd: Ragnar Hólm Ragnarsson.

Íbúafundur verður haldinn í Hrísey fimmtudaginn 20. mars kl. 16.00 í Íþróttamiðstöðinni. Þar verða kynntar niðurstöður málþings sem haldið var í september og fjallaði meðal annars um atvinnumál, byggðaþróun, þjónustu við íbúa, samgöngur, sumarhús, afþreyingu, ferðaþjónustu, umhverfismál og heilbrigðismál.

Allir sem láta sig málefni Hríseyjar varða eru hvattir til að mæta á fundinn. Boðið verður upp á súpu og brauð í lok fundarins kl. 18.00.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan