Hundur í óskilum frumsýnir Öldin okkar

Félagarnir Eiríkur Stephensen og Hjörleifur Hjartarson í hljómsveitinni Hundur í Óskilum voru farnir að gæla við þá hugmynd að setja á svið gríðarstóra sýningu með 20 dönsurum og leikurum í tilefni af 20 ára afmæli sveitarinnar. Þeir neyddust hins vegar til að sníða sér stakk eftir vexti og nú trana þeir engum öðrum fram en sjálfum sér (enn eina ferðina) í glænýju leik- og tónverki sem kallast Öldin okkar.

Hundur í Óskilum er við sama heygarðshornið og í Sögu þjóðar en spólar sig að þessu sinni í gegnum 21. öldina - þessi 14 ár sem liðin eru. Hundinum er náttúrlega ekkert íslenskt óviðkomandi; hann gefur sig í tali og tónum að mannlífinu til sjávar og sveita, ræður í gjörðir stjórnmálamanna og spyr allra spurninganna sem brenna í brjóstum leikhúsgesta. Frábær skemmtun með helstu tvenndarleikurum landsins. Leikstjóri er Ágústa Skúladóttir.

Verkið verður frumsýnt föstudaginn 31. október í Samkomuhúsinu, aðsetri LA, í samstarfi við Leikfélag Akureyrar. Miðsala fer fram í Menningarhúsinu Hofi.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan