Íris Ólöf Sigurjónsdóttir.
Á morgun, þriðjudaginn 21. september, kl. 17 heldur Íris Ólöf Sigurjónsdóttir forstöðumaður Byggðasafnsins Hvols á
Dalvík fyrirlestur í Ketilhúsinu á Akureyri undir yfirskriftinni Hugmynd verður sýning. Þar fjallar hún um sýninguna Myndlist
minjar / Minjar myndlist sem nú stendur yfir í Listasafninu á Akureyri en Íris Ólöf er sýningarstjóri sýningarinnar. Fyrir utan
almenn safnastörf fæst hún við hönnun á eigin textílum og hefur hannað allar sýningar Byggðasafnsins Hvols auk þess að setja upp
sýningar í öðrum rýmum. Íris Ólöf er menntuð í textíl og textílforvörslu frá Osló og London en hún
starfaði áður hjá Árbæjarsafni í Reykjavík.
Á sýningunni Myndlist minjar / Minjar myndlist gefur annars vegar að líta muni markaða af sögu, menningu og andblæ liðins tíma og hins
vegar ný listaverk unnin af ellefu listamönnum á aldrinum 28-70 ára sem boðið var að vinna þau út frá munum Byggðasafnsins.
Enginn aðgangseyrir er á fyrirlesturinn sem er sá fjórði í röð fyrirlestra sem haldnir eru í Ketilhúsinu á hverjum
þriðjudegi kl. 17 undir yfirskriftinni Þriðjudagsfyrirlestrar.
Fyrirlestraröðin er samvinnuverkefni Listasafnsins á Akureyri, Verkmenntaskólans á Akureyri, Háskólans á Akureyri og Myndlistaskólans
á Akureyri. Á meðal annarra fyrirlesara vetrarins eru Jón Gunnar Þórðarson leikstjóri og myndlistarmennirnir Aðalsteinn Þórsson,
Stefán Boulter og Guðmundur Ármann Sigurjónsson.
Myndlist minjar / Minjar myndlist stendur til 7. desember og er opin alla daga nema mánudaga kl. 12-17. Aðgangur er ókeypis.